Hydrea Carved Pumice Stone with Rope | Dekra

Frí heimsending ef verslað er fyrir kr. 6.500 eða meira.

Hydrea Carved Pumice Stone with Rope

1.250 kr.

Náttúrulegur vikursteinn fyrir fótsnyrtingu. Með bandi. Þessi náttúrulegi vikursteinn er notaður til skrúbba og snyrta þurra fætur og ná af siggi. Steinninn hangir í bandi svo auðvelt sé að hengja hann upp eftir notkun. Þornar hratt og vel. Notaðu vikursteininn eftir bað / sturtu eða farðu í fótabað og nuddaðu með vikursteininum til fjarlægja dauðar húðfrumur. Hreinsið fætur með sápu og volgu vatni eftir notkun. Skolið síðan vikursteininn af með volgu vatni.
Vikur er eins og margir þekkja létt steinefni sem myndast við eldgos og er eini steinninn sem flýtur á vatni. Bakteríur þrifast síður í vikri.

Vörunúmer: HYD PUSR Flokkur:
UM HYDRÉA LONDON

Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fíngerða sem húðin í raun þarfnast.

Þetta er línan sem margar af helstu heilsulindum heims kjósa að eiga viðskipti við.

Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu. Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu heilsumarkaðnum.

Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company sem bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur. Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London. Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri. Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður og hanskarnir jafnan úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina. Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.