Hydrea Silk Cosmetics Sea Spongs x3 | Dekra

Frí heimsending ef verslað er fyrir kr. 6.500 eða meira.

Hydrea Silk Cosmetics Sea Spongs x3

2.790 kr.

SILKIMJÚKUR SJÁVARSVAMPUR FYRIR FÖRÐUN OG HREINSUN. Fíngerður silkimjúkur sjávarsvampur sem er mjög rakadrægur og hentar til daglegrar notkunar.
Svampur með litlum holum sem er mjög vel til þess fallinn að nota við förðun, auk þess sem hægt er að djúphreinsa viðkvæma húð í kringum augu og nef.
Þar sem þessi sjávarsvampur er mjúkur sem silki hentar hann til að hreinsa viðkvæma húð barna.
Silki sjávarsvampinn er líka hægt að nota til að hreinsa húðflögur með mildum hætti fyrir fallegan ljóma.
3 litlir svampar saman í pakka.
Handvaldir úr Miðjarðarhafinu.

Ekki til á lager

Vörunúmer: HYD FSB2W Flokkur:

Þessi vara er vinsæl! Skráðu þig á biðlistann og vertu tilbúin þegar hún kemur aftur á lager. Þú færð tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

UM HYDRÉA LONDON

Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fíngerða sem húðin í raun þarfnast.

Þetta er línan sem margar af helstu heilsulindum heims kjósa að eiga viðskipti við.

Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu. Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu heilsumarkaðnum.

Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company sem bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur. Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London. Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri. Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður og hanskarnir jafnan úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina. Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.