L’Oxygéné línan, frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru eiturefnalaus, vegan, næra, anda, endast og þykja framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist um að dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free” og það má næstum borða þau en við mælum ekki með því. Og við ítrekum; þau eru vegan.
Á N 12 S K A Ð L E G U S T U E F N A N N A:
L’Oxygéné eru án ALLRA, eða 12 skaðlegustu efnanna sem almennt er að finna í naglalökkum. Þau eru: Formaldehýð Túlín Kemísk kamfóra DPB (skaðleg þalöt) Formaldehýð kvoðu (resin), xylene, ethyl tosylamide, triphenyl phosphate, alkóhóls, parabena, dýraafurða & glútens (sem er ekki sjálfgefið).
Nailberry L’Oxyéné henta því ekki bara flestum heldur öllum. Þar með talið óléttum konum, börnum og líka þorra þeirra sem þjást af allskyns ofnæmum. Þau sameina í senn fegurð og hreinleika og það er ekkert gefið eftir þegar kemur að heilsusamlegum snyrtivörum. Neglurnar koma vel nærðar undan Nailberry L’Oxygéné. Í fyrra unnu þau til tvennra virtra verðlauna sem eru :
V E R Ð L A U N & V I Ð U R K E N N I N G A R:
Besta alþjóðlega bjútí heilsuvaran (Natural Health International Beauty Award 2016) og aftur komið í úrslit fyrir 2017. Best hannaða fegrunavaran (Best Beauty Stylist).
H Á T Í S K A N & J Ó G A
Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully sem hóf að þróa Nailberry fyrir fimm árum. Hún ákvað strax í upphafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú getur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir í jóga og líka við önnur hátíðleg tækifæri.