Skilmálar | Dekra

Frí heimsending ef verslað er fyrir kr. 6.500 eða meira.

Skilmálar

ALMENNT

Verð geta breyst án fyrirvara.  Dekra.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Dekra Innflutningur ehf
Kennitala: 410720-0510
VSK-númer: 138081

AFHENDING VÖRU

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Dekra Innflutningur ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Dekra Innflutningur og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Vörur pantaðar í netverslun fyrir hádegi eru afgreiddar næsta virka dag sé allt eðlilegt.

Athugið að fyrirvari er gefin á því að pöntuð vara geti mögulega selst upp í verslun á meðan pöntun gerð í netversluninni fer í gegnum kerfið, en það getur tekið allt að 15 mínútur. Komi upp slíkar aðstæður munum við strax hafa samband og bjóða viðkomandi sambærilega vöru eða endurgreiðslu.

Athugið að vara sem er pöntuð á netinu og greidd með korti afgreiðist eftir kl: 14:00 næsta virka dag.

Allir landsmenn sitja við sama borð þegar kemur að netverslun.
Við sendum frítt á næsta pósthús eða póstbox ef pantað er fyrir 9.000 kr eða meira.

Sendingar undir 9.000 kr. bera flutningsgjald samkvæmt verðskrá póstsins, sjá nánar hér.

SKILAFRESTUR

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

NETVERÐ

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. 

SKATTAR OG GJÖLD

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness