Skref 1 – Berið sjampóið í blautt hárið og nuddið með burstanum með hringlaga hreyfingum og léttum þrýstingi. Nuddið áfram með burstanum á meðan hárið er skolað til að tryggja góða hreinsun á hársverðinum.
Skref 2 Eftir að hárið hefur verið skolað þá berið hárnæringuna í blautt og hreint hárið. Bíðið í 3 mínútur og skolið.
Hármaski – Best er að nota hármaskann 1-2 í viku. Eftir að hárið hefur verið þvegið með sjampói þá er maskinn borinn í hárið frá miðju lengdar til enda. Látið maskann bíða í 5-15 mínútur. Skolið úr hárinu. Berið hárnæringuna í hárið og látið bíða í 3 mínútur og skolið.



