Hydrea Round Bamboo Body Brush | Dekra

Frí heimsending ef verslað er fyrir kr. 6.500 eða meira.

Hydrea Round Bamboo Body Brush

2.200 kr.

Hringlaga bambusbursti. Hringlaga líkamsbursti úr 100% náttúrulegum efnum. Handfangið er úr sjálfbærum bambusviði og burstinn er kaktus- og hestahárum sem fallið hafa til. Blandan skapar fullkomið jafnvægi milli árangurs og áferðar, án þess að vera of grófur. Burstinn er með þægilegu haldi og miðlungs harður. Hægt að nota bæði þurran eða rakan til að fjarlægja dauðar húðfrumur og mýkja húðina. Skaftið má setja á og taka af eftir þörfum. Líka góður til að nudda bak og önnur svæði sem erfiðara er að ná til.
Kaktus+ hestahár | Bambusviður úr sjálfbærri uppsprettu.
Hörkustig 4 af 5 mögulegum

Vörunúmer: HYD WBB10H-HD Flokkur:
UM HYDRÉA LONDON

Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fíngerða sem húðin í raun þarfnast.

Þetta er línan sem margar af helstu heilsulindum heims kjósa að eiga viðskipti við.

Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu. Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu heilsumarkaðnum.

Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company sem bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur. Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London. Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri. Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður og hanskarnir jafnan úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina. Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.