Nailberry 2 | Dekra

Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upp­hafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú getur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir.

IMG_6934

NAGLALÖKK

NAGLALÖKK

BREATHABLE

Nailberry átti aldrei að vera enn eitt hefðbundið naglalakk. Nailberry á fjölmörg einkaleyfi sem tryggja það að L’Oxygéné hleypir í gegnum sig raka og súrefni. Þrátt fyrir þennan einstaka eiginleika er ekki slegið slöku við í fjölbreytni í litaúrvali, gljáa eða ending.

12 FREE

L’Oxygéné línan frá Nailberry, eru sannkölluð lúxus naglalökk. Þau hleypa í gegn raka og súrefni. Eru án 12 skaðlegestu efnanna, VEGAN, næra, anda, endast og eru framúrskarandi smart. Fagfólkið keppist á um að dásama Nailberry L’Oxygéné. Þau hafa hlotið hina kærkomnu vottun PETA “cruelty free”.

Vegan og Cruelty free

Nailberry byggist á mjög strangri hugmyndafræði sem fylgt er út í ystu æsar, grunnurinn af henni byggist á því að bera virðingu fyrir lífi vina okkar úr dýraríkinu.
L’Oxygéné er stolt af því að vera vottað af PETA sem “Cruelty Free & Vegan”

Search