Hydrea Sisal Exfoliating Sponge | Dekra

Hydrea Sisal Exfoliating Sponge

1.700 kr.

Sisal svampur sem fjarlægir dauður húðfrumur. Þessi sisal svampur er tilvalinn til notkunar með uppáhalds sápunni þinni fyrir líkamsþvott. Úr umhverfisvænum og niðurbrjótanlegum sisal trefjum sem unnar eru úr laufum agave plöntunnar.
Býr til ríkulega froðu fyrir milda húðhreinsun og fjarlægir dauðar húðfrumur um leið. Ofinn sisal hlíf utan um bolta úr sisal plöntutrefjum er náttúruleg leið til að endurnýja húðina á áhrifaríkan hátt. Bætir líka blóðrás og húðlit.
Vegan | Úr jurtum |
Mýkt / Harka 4 af 5 mögulegum

Vörunúmer: HYD SS5 Flokkur:
UM HYDRÉA LONDON

Hydréa London er leiðandi í baðdekri og býður allt það fíngerða sem húðin í raun þarfnast.

Þetta er línan sem margar af helstu heilsulindum heims kjósa að eiga viðskipti við.

Hydréa London er fremst í hönnun náttúrlegra og framúrskarandi vandaðra húðbursta og annarra húðdekurvara, auk þess sem náttúrlegir svampar eru stór hluti af þessari fallegu baðdekurlínu. Óviðjafnanleg gæði og mikið úrval, ásamt djúpri umhverfisvitund og ábyrgum innkaupum hefur skapað Hydréa London einstaka stöðu heilsumarkaðnum.

Í samvinnu við The Natural Sea Sponge Company sem bjó til Hydréa London á 10 áratugnum, hefur tekist að hanna framúrskarandi góða og fjölbreytta spa / húðumhirðulínu með sérstakri ástríðu fyrir smáatriðum til að tryggja hámarks árangur. Hér skipta nefnilega smáatriðin öllu máli og vöruþróun er hvergi sambærileg og hjá Hydréa London. Línan spannar allt frá mismunandi stórum og hörðum eða mjúkum húðburstum til fíngerðra augnsvampa og frá nuddhönskum til fótaþjala úr viði og vikri. Hárin í húðburstunum eru náttúrleg, svamparnir úr sjálfbærri uppsprettu, viðurinn FSC vottaður og hanskarnir jafnan úr bambus eða öðrum náttúrlegum efnum sem öll eru umhverfisvæn. Enda löngu tímabært að hanna aðeins það besta fyrir stærsta líffæri mannsins, húðina. Hydréa London hlaut á þessu ári “Good Brand Award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni af hinu virta tímariti Sublime. Meðal þeirra sem njóta þess að bjóða upp Hydréa London eru Planet Organic, Liberty og Harrods og mörg af helstu heilsuhótelum hótelum heims.

KOSTIR
·        Hjálpar sogæðakerfinu að losa sig við óhreindi

·        Örvar blóðrásarkerfið á náttúrulegan hátt

·        Hjálpar við að hreinsa húðina með nauðsynlegum næringarefnum

·        Sléttir, mýkir og birtir húðlit.

·        Stuðlar að heilbrigðri endurnýjun húðfrumna.

AUKA UPPLÝSINGAR

MÁL

Ummál: 11 cm

Þykkt: 3,8 cm

Þyngd: 35g

Efni

100% Sísallilja

Umhirða sísallilju

Eftir notkun, þrífa vandlega með höndum og vinda allt vatn út, endurmótið og látið þorna náttúrulega á þurrum stað.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Nota í baði eða sturtu.
  2. Bleyttu hlutinn og notaðu sápu til að búa til froðu á líkamanum.
  3. Nuddaðu í hringlaga hreyfingu í átt að hjartanu með smá þrýstingi.
  4. Skolaðu sápuna af með ilvolgu vatni

Ekki nota á viðkvæm svæði eða særða húð!